Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,5% milli mars og apríl 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 1,3% (áhrif á vísitölu 0,3%), annar iðnaður hækkaði um 0,6% (0,1%), afurðir stóriðju hækkuðu um 0,3% (0,1%) og matvæli lækkuðu um 0,2% (0%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 10,2% frá apríl 2018 til apríl 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 16,2%, afurðir stóriðju hækkuðu um 10%, annar iðnaður hækkaði um 9,1% og matvæli hækkuðu um 4,1% á sama tíma.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 13,8% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 4,1%.

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
  Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
Vísitala framleiðsluverðs209,90,50,510,2
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir283,01,30,316,2
Stóriðja209,60,30,110,0
Matvæli181,1-0,20,04,1
Annar iðnaður151,20,60,19,1
Eftir mörkuðum 
Innlend sala171,60,00,04,1
Útfluttar afurðir233,60,80,513,8

Talnaefni