Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,4% milli janúar og febrúar 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 3,9% (áhrif á vísitölu -1,2%), annar iðnaður lækkaði um 1,7% (-0,4%) og matvæli lækkuðu um 0,4% (-0,1%). Afurðir stóriðju hækkuðu um 0,6% (0,2%).
Miðað við febrúar 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,5%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 11,0% og annar iðnaður lækkað um 13,1%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,4% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,3%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2017 | ||||
Breyting frá fyrri mánuði | ||||
Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
Vísitala framleiðsluverðs | 188,3 | -1,4 | -1,4 | -5,5 |
Eftir atvinnugreinum: | ||||
Sjávarafurðir | 234,9 | -3,9 | -1,2 | -11,0 |
Stóriðja | 180,1 | 0,6 | 0,2 | 2,8 |
Matvæli | 173,1 | -0,4 | -0,1 | 0,0 |
Annar iðnaður | 151,4 | -1,7 | -0,4 | -13,1 |
Eftir mörkuðum: | ||||
Innlend sala | 170,2 | -0,3 | -0,1 | -3,3 |
Útfluttar afurðir | 198,8 | -1,9 | -1,3 | -6,4 |