FRÉTT VERÐLAG 27. MARS 2018

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,1% milli janúar og febrúar 2018. Sjávarafurðir lækkuðu um 2,4% (áhrif á vísitölu -0,6%) en afurðir stóriðju hækkuðu um 5,8% (1,9%). Matvæli hækkuðu um 0,3% (0,1%) og annar iðnaður lækkaði um 1,3% (-0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 4,2% frá febrúar 2017 til febrúar 2018. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 4,3% en annar iðnaður lækkaði um 6,3%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 13,8% en matvæli hækkað um 0,5% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 8,2% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 2,9%.  

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 196,3 1,1 1,1 4,2
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 245,1 -2,4 -0,6 4,3
Stóriðja 204,9 5,8 1,9 13,8
Matvæli 174,0 0,3 0,1 0,5
Annar iðnaður 141,9 -1,3 -0,3 -6,3
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 165,3 -0,4 -0,1 -2,9
Útfluttar afurðir 215,2 1,9 1,2 8,2

 

Talnaefni 

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.