FRÉTT VERÐLAG 29. FEBRÚAR 2016

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2016 var 201,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 265,6 stig, sem er lækkun um 1,4% (vísitöluáhrif -0,4%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 179,7 stig, hækkun um 1,6% (0,5%).  Framleiðsluverð fyrir matvæli hækkaði um 0,3% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,1% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,6% (-0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,2% (0,1%).

Miðað við janúar 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 9,6% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 3,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 23,8% en verð á matvælum hækkað um 2,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala framleiðsluverðs Sjávarafurðir Afurðir stóriðju Matvæli Innlend sala Útfluttar afurðir
             
2015            
Janúar 0,2 1,0 -0,6 -0,2 -0,1 0,3
Febrúar -2,0 -1,9 -4,2 -0,5 0,2 -2,8
Mars 2,4 1,6 5,0 -0,3 0,2 3,3
Apríl -0,8 0,7 -3,3 0,0 0,3 -1,2
Maí 0,0 -0,9 -0,5 0,7 1,2 -0,4
Júní -0,4 1,0 -1,1 0,2 -0,4 -0,3
Júlí -2,5 1,0 -6,6 1,4 -0,7 -3,2
Ágúst -2,1 -2,9 -4,3 1,2 0,8 -3,4
September -2,7 -2,6 -7,9 0,0 1,7 -4,5
Október -1,2 -1,7 -0,4 -0,4 -1,0 -1,3
Nóvember 0,4 2,1 0,1 -0,8 -0,8 0,9
Desember -1,2 1,3 -4,5 0,6 -0,9 -1,3
2016            
Janúar -0,1 -1,4 1,6 0,3 -0,6 0,2

 

Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala framleiðsluverðs Sjávarafurðir Afurðir stóriðju Matvæli Innlend sala Útfluttar afurðir
             
2015            
Janúar 14,2 14,0 24,8 0,5 3,3 18,3
Febrúar 12,1 13,2 22,0 0,4 1,2 16,0
Mars 15,9 13,3 31,5 0,0 2,5 20,9
Apríl 14,4 11,2 28,2 -0,7 2,2 18,9
Maí 12,5 9,6 18,9 0,0 5,4 15,0
Júní 11,0 9,2 20,2 0,3 2,3 14,1
Júlí 7,4 8,8 7,5 1,5 4,0 8,4
Ágúst 1,5 3,3 -4,4 2,7 4,3 0,1
September -2,9 2,4 -16,0 3,1 4,7 -6,1
Október -5,2 -1,3 -16,9 2,0 2,9 -8,5
Nóvember -5,3 -0,7 -17,0 1,4 2,3 -8,4
Desember -9,4 -1,5 -25,5 1,7 0,5 -13,3
2016            
Janúar -9,6 -3,8 -23,8 2,2 -0,1 -13,4

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.