FRÉTT VERÐLAG 28. FEBRÚAR 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,8% milli desember 2016 og janúar 2017. Afurðir stóriðju hækkuðu um 1,5% (Áhrif á vísitölu 0,5%) en annar iðnaður lækkaði um 2,5% (-0,5%). Matvæli lækkuðu um 0,3% (-0,1%) og sjávarafurðir hækkuðu um 2,9% (0,9%).

Miðað við janúar 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,3%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 8,0% og annar iðnaður lækkað um 12,2%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,0% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,5%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 191,1 0,8 0,8 -5,3
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 244,3 2,9 0,9 -8,0
Stóriðja 178,9 1,5 0,5 -0,5
Matvæli 173,8 -0,3 -0,1 0,2
Annar iðnaður 154,0 -2,5 -0,5 -12,2
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 170,8 -1,0 -0,3 -3,5
Útfluttar afurðir 202,8 1,6 1,1 -6,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.