FRÉTT VERÐLAG 31. ÁGÚST 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,2% milli júní og júlí 2017. Sjávarafurðir hækkuðu um 3,8% (áhrif á vísitölu 1,1%),  afurðir stóriðju hækkuðu um 2,0% (0,6%), annar iðnaður hækkaði um 1,8% (0,4%) og matvæli hækkuðu um 0,5% (0,1%).

Miðað við júlí 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 7,8%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 8,7%, annar iðnaður lækkað um 20,5%. Afurðir stóriðju hafa staðið í stað og matvæli lækkað um 2,4% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 10,2%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 184,6 2,2 2,2 -7,8
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 235,0 3,8 1,1 -8,7
Stóriðja 177,1 2,0 0,6 0,0
Matvæli 173,1 0,5 0,1 -2,4
Annar iðnaður 141,1 1,8 0,4 -20,5
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 162,7 1,7 0,6 -10,2
Útfluttar afurðir 197,2 2,5 1,6 -6,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.