Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,0% milli júní og júlí 2019. Annar iðnaður hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitölu 0,2%) og afurðir stóriðju lækkuðu um 3,6% (-1,2%).
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 5,9% frá júlí 2018 til júlí 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 21,2%, annar iðnaður hækkaði um 12,0%, matvæli hækkuðu um 4,6% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 6,8%.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 5,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 6,7%.
| Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2019 | ||||
| Breyting frá fyrri mánuði | ||||
| Vísitala 4. ársf. 2005 = 100 | % | Áhrif á vísitölu % | Breyting frá fyrra ári % | |
| Vísitala framleiðsluverðs | 213,0 | -1,0 | -1,0 | 5,9 |
| Eftir atvinnugreinum | ||||
| Sjávarafurðir | 302,6 | 0,0 | 0,0 | 21,2 |
| Stóriðja | 202,4 | -3,6 | -1,2 | -6,8 |
| Matvæli | 182,5 | 0,2 | 0,0 | 4,6 |
| Annar iðnaður | 157,3 | 0,8 | 0,2 | 12,0 |
| Eftir mörkuðum | ||||
| Innlend sala | 175,7 | 0,9 | 0,3 | 6,7 |
| Útfluttar afurðir | 235,9 | -2,1 | -1,3 | 5,3 |
