Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,0% milli júní og júlí 2019. Annar iðnaður hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitölu 0,2%) og afurðir stóriðju lækkuðu um 3,6% (-1,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 5,9% frá júlí 2018 til júlí 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 21,2%, annar iðnaður hækkaði um 12,0%, matvæli hækkuðu um 4,6% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 6,8%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 5,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 6,7%.

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
   
Vísitala framleiðsluverðs213,0-1,0-1,05,9
Eftir atvinnugreinum 
Sjávarafurðir302,60,00,021,2
Stóriðja202,4-3,6-1,2-6,8
Matvæli182,50,20,04,6
Annar iðnaður157,30,80,212,0
Eftir mörkuðum 
Innlend sala175,70,90,36,7
Útfluttar afurðir235,9-2,1-1,35,3

Ársbreyting vísitala framleiðsluverðs

Talnaefni