FRÉTT VERÐLAG 24. JÚLÍ 2018

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,3% á milli maí og júní 2018. Afurðir stóriðju hækkuðu um 4,2% (áhrif á vísitölu 1,5%), sjávarafurðir hækkuðu um 2,1% (0,5%), annar iðnaður hækkaði um 1,3% (0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 11,7% frá júní 2017 til júní 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 27,9%, sjávarafurðir hækkað um 10,4% og matvæli hækkað um 1,0%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 0,5% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 17% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 2,6%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2018
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 201,7 2,3 2,3 11,7
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 250,0 2,1 0,5 10,4
Stóriðja 222,1 4,2 1,5 27,9
Matvæli 173,9 0,2 0,0 1,0
Annar iðnaður 137,8 1,3 0,3 -0,5
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 164,2 0,4 0,1 2,6
Útfluttar afurðir 225,3 3,3 2,2 17,0



Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.