FRÉTT VERÐLAG 30. JÚNÍ 2016

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2016 var 201,4 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 262,1 stig, hækkaði um 0,8%  frá fyrri mánuði (áhrif á vísitöluna 0,3%) og vísitala fyrir stóriðju var 177,9 stig, hækkaði um 1,7% (0,6%).  Framleiðsluverð fyrir matvæli lækkaði um 0,1% (0,0%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,6% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem seldar voru innanlands hækkaði um 0,5% (0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,1% (0,8%).

Miðað við maí 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 9,5% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 4,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 22,1% en verð á matvælum hækkað um3,8%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala framleiðsluverðs Sjávarafurðir Afurðir stóriðju Matvæli Innlend sala Útfluttar afurðir
             
2015            
Maí 0,0 -0,9 -0,5 0,7 1,2 -0,4
Júní -0,4 1,0 -1,1 0,2 -0,4 -0,3
Júlí -2,5 1,0 -6,6 1,4 -0,7 -3,2
Ágúst -2,1 -2,9 -4,3 1,2 0,8 -3,4
September -2,7 -2,6 -7,9 0,0 1,7 -4,5
Október -1,2 -1,7 -0,4 -0,4 -1,0 -1,3
Nóvember 0,4 2,1 0,1 -0,8 -0,8 0,9
Desember -1,2 1,3 -4,5 0,6 -0,9 -1,3
2016            
Janúar -0,1 -1,4 1,6 0,3 -0,6 0,2
Febrúar -1,2 -0,6 -2,6 -0,3 -0,6 -1,5
Mars 0,5 -1,2 2,5 0,6 0,6 0,5
Apríl -0,5 -0,4 -2,5 1,2 1,5 -1,3
Maí 1,0 0,8 1,7 -0,1 0,5 1,1
Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala framleiðsluverðs Sjávarafurðir Afurðir stóriðju Matvæli Innlend sala Útfluttar afurðir
             
2015            
Maí 12,5 9,6 18,9 0,0 5,4 15,0
Júní 11,0 9,2 20,2 0,3 2,3 14,1
Júlí 7,4 8,8 7,5 1,5 4,0 8,4
Ágúst 1,5 3,3 -4,4 2,7 4,3 0,1
September -2,9 2,4 -16,0 3,1 4,7 -6,1
Október -5,2 -1,3 -16,9 2,0 2,9 -8,5
Nóvember -5,3 -0,7 -17,0 1,4 2,3 -8,4
Desember -9,4 -1,5 -25,5 1,7 0,5 -13,3
2016            
Janúar -9,6 -3,8 -23,8 2,2 -0,1 -13,4
Febrúar -8,9 -2,6 -22,6 2,4 -0,9 -12,2
Mars -10,7 -5,3 -24,4 3,4 -0,5 -14,6
Apríl -10,4 -6,3 -23,8 4,6 0,7 -14,7
Maí -9,5 -4,6 -22,1 3,8 0,0 -13,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.