Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,7% milli febrúar og mars 2019. Matvæli hækkuðu um 1,2% (áhrif á vísitölu 0,2%), sjávarafurðir hækkuðu um 1,0% (0,2%), afurðir stóriðju hækkuðu um 0,5% (0,2%), annar iðnaður hækkaði um 0,4% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 8,2% frá mars 2018 til mars 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 15,4%, annar iðnaður hækkaði um 7,4%, afurðir stóriðju hækkuðu um 5,5%, matvæli hækkuðu um 4,2% á sama tíma.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 10,6% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 4,0%.

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2019
Breyting frá fyrri mánuði
Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
Vísitala framleiðsluverðs208,80,70,78,2
Eftir atvinnugreinum
Sjávarafurðir279,31,00,215,4
Stóriðja209,00,50,25,5
Matvæli181,41,20,24,2
Annar iðnaður150,30,40,17,4
Eftir mörkuðum
Innlend sala171,51,30,54,0
Útfluttar afurðir231,80,40,210,6

Ársbreyting vísitala framleiðsluverðs

Talnaefni