Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,4% milli september og október 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 1,3% (áhrif á vísitölu -0,3%) en afurðir stóriðju hækkuðu um 2,5% (0,7%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 0,5% frá október 2016. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 0,4% og annar iðnaður lækkaði um 17,9%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 18,7% en matvæli lækkað um 2,9% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 5,5% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 8,4%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
Vísitala framleiðsluverðs í október 2017 | ||||
Breyting frá fyrri mánuði | ||||
Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
Vísitala framleiðsluverðs | 192,8 | 0,4 | 0,4 | 0,5 |
Eftir atvinnugreinum | ||||
Sjávarafurðir | 243,7 | -1,3 | -0,3 | -0,4 |
Stóriðja | 197,5 | 2,5 | 0,7 | 18,7 |
Matvæli | 171,8 | -0,1 | 0,0 | -2,9 |
Annar iðnaður | 141,3 | 0,0 | 0,0 | -17,9 |
Eftir mörkuðum | ||||
Innlend sala | 162,8 | 0,0 | 0,0 | -8,4 |
Útfluttar afurðir | 211,1 | 0,7 | 0,4 | 5,5 |
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.