FRÉTT VERÐLAG 29. NÓVEMBER 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,4% milli september og október 2017. Sjávarafurðir lækkuðu um 1,3% (áhrif á vísitölu -0,3%) en  afurðir stóriðju hækkuðu um 2,5% (0,7%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 0,5% frá október 2016. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 0,4% og annar iðnaður lækkaði um 17,9%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 18,7% en matvæli lækkað um 2,9% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 5,5% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 8,4%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í október 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 192,8 0,4 0,4 0,5
Eftir atvinnugreinum        
Sjávarafurðir 243,7 -1,3 -0,3 -0,4
Stóriðja 197,5 2,5 0,7 18,7
Matvæli 171,8 -0,1 0,0 -2,9
Annar iðnaður 141,3 0,0 0,0 -17,9
         
Eftir mörkuðum        
Innlend sala 162,8 0,0 0,0 -8,4
Útfluttar afurðir 211,1 0,7 0,4 5,5

Talnaefni 

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.