Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,1% milli september og október 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 0,6% (áhrif á vísitölu 0,1%) á meðan annar iðnaður lækkaði um 0,8% (-0,2%).
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,1% frá október 2018 til október 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 12,3%, annar iðnaður hækkaði um 4,5%, matvæli hækkuðu um 2,1% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 8,7%.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 0,7% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 1,7%.
Vísitala framleiðsluverðs í október2019 | ||||
Breyting frá fyrri mánuði | ||||
Vísitala 4. ársfj. 2005 = 100 | % | Áhrif á vísitölu % | Breyting frá fyrra ári % | |
Vísitala framleiðsluverðs | 211,4 | -0,1 | -0,1 | 1,1 |
Eftir atvinnugreinum | ||||
Sjávarafurðir | 300,9 | 0,6 | 0,1 | 12,3 |
Stóriðja | 199,6 | -0,1 | 0,0 | -8,7 |
Matvæli | 182,3 | -0,2 | 0,0 | 2,1 |
Annar iðnaður | 156,4 | -0,8 | -0,2 | 4,5 |
Eftir mörkuðum | ||||
Innlend sala | 174,6 | -0,5 | -0,2 | 1,7 |
Útfluttar afurðir | 234,0 | 0,1 | 0,1 | 0,7 |