Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,1% milli september og október 2019. Sjávarafurðir hækkuðu um 0,6% (áhrif á vísitölu 0,1%) á meðan annar iðnaður lækkaði um 0,8% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,1% frá október 2018 til október 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 12,3%, annar iðnaður hækkaði um 4,5%, matvæli hækkuðu um 2,1% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 8,7%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 0,7% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 1,7%.

Vísitala framleiðsluverðs í október2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
Vísitala
4. ársfj. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 211,4 -0,1 -0,1 1,1
Eftir atvinnugreinum  
Sjávarafurðir 300,9 0,6 0,1 12,3
Stóriðja 199,6 -0,1 0,0 -8,7
Matvæli 182,3 -0,2 0,0 2,1
Annar iðnaður 156,4 -0,8 -0,2 4,5
   
Eftir mörkuðum  
Innlend sala 174,6 -0,5 -0,2 1,7
Útfluttar afurðir 234,0 0,1 0,1 0,7

Framleiðsluverð

Talnaefni