FRÉTT VERÐLAG 03. MAÍ 2007

Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3% frá apríl 2006 til jafnlengdar í ár. Dregið hefur úr verðbólgu síðustu tvo mánuði, aðallega vegna lækkunar virðisaukaskatts og afnáms vörugjalda þann 1. mars síðastliðinn. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2%.

Nú hefur verið gefið út sérstakt hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs frá apríl 2006 til apríl 2007. Í heftinu er fjallað um vísitölu neysluverðs og birtar töflur um þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni vísitölunnar í mars 2007. Fjallað er sérstaklega um fastskattavísitölu neysluverðs, sem reiknuð var í fyrsta sinn í mars 2007 og breytingar sem verða á tímasetningu verðsöfnunar vegna vísitölu neysluverðs í janúar 2008.

Vísitala neysluverðs apríl 2006-2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.