FRÉTT VERÐLAG 16. MAÍ 2008

Vísitala neysluverðs hækkaði um 11,8% frá apríl 2007 til jafnlengdar í ár. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Verðbólga hefur aukist, sérstaklega það sem af er þessu ári en ein meginástæða þess er mikil lækkun  á gengi íslensku krónunnar.

Nú hefur verið gefið út sérstakt hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs frá apríl 2007 til apríl 2008. Í því eru birtar töflur um þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni vísitölunnar í mars 2008. Fjallað er sérstaklega um þriðju kjarnavísitölu neysluverðs, sem reiknuð var í fyrsta sinn í febrúar 2008, þar sem þáttur vaxtabreytinga í húsnæðislíkani vísitölunnar er undanskilinn.

Vísitala neysluverðs apríl 2007-2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.