FRÉTT VERÐLAG 14. JANÚAR 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í byrjun janúar 2008 er 282,6 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,28% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 251,1 stig, lækkaði um 0,12% frá desember.

Vetrarútsölur eru nú víða hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif -0,46%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,3% (0,25%), þar af voru 0,15% áhrif vegna hækkunar vaxta og 0,1% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis. Gjöld tengd húsnæði hækkuðu um 8,8% (0,10%) og verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,9% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,4%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,8% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,6% verðbólgu á ári (3,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2007 var 273,7 stig, 5,0% hærri en meðalvísitalan 2006. Samsvarandi breyting var 6,8% árið 2006 og 4,0% árið 2005. 

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis var 246,7 stig árið 2007, 2,5% hærri en árið 2006. Samsvarandi breyting var 4,8% árið 2006 og 0,9% árið 2005.

Vísitala neysluverðs í janúar 2008, sem er 282,6 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.580 stig fyrir febrúar 2008.

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum mánuði verður birt þann 29. janúar. Hún mun verða endanleg vísitala fyrir janúar og gilda til verðtryggingar í mars.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,6 0,3 3,5 6,6 7,2 5,9

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 157,9 158,4 5,9% 5,9%
Þar af:    
Innlendar vörur 134,3 135,3 -2,2% -0,3%
Búvörur og grænmeti 131,0 131,7 -2,3% -0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 136,3 137,5 -2,1% -0,2%
Innfluttar vörur alls 123,4 122,1 2,6% 0,9%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  119,4 118,0 2,9% 0,9%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 159,7 160,0 5,9% 5,3%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 160,8 160,9 6,2% 5,1%
Dagvara 127,8 128,7 -3,0% -0,5%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.