Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2018 er 454,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,04% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 389,1 stig og lækkar um 0,26% frá júní 2018.
Sumarútsölur hafa víða verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 11,3% (áhrif á vísitöluna -0,41%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,0% (0,22%). Flugfargjöld til útlanda hækka um 23,0% (0,31%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,4%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2018, sem er 454,8 stig, gildir til verðtryggingar í september 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.980 stig fyrir september 2018.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2017 | ||||||
Júlí | 442,9 | 0,0 | -0,3 | 0,7 | 3,0 | 1,8 |
Ágúst | 444,0 | 0,2 | 3,0 | 0,9 | 2,0 | 1,7 |
September | 444,6 | 0,1 | 1,6 | 1,5 | 2,1 | 1,4 |
Október | 446,7 | 0,5 | 5,8 | 3,5 | 2,1 | 1,9 |
Nóvember | 446,0 | -0,2 | -1,9 | 1,8 | 1,4 | 1,7 |
Desember | 447,2 | 0,3 | 3,3 | 2,4 | 1,9 | 1,9 |
2018 | ||||||
Janúar | 446,8 | -0,1 | -1,1 | 0,1 | 1,8 | 2,4 |
Febrúar | 449,5 | 0,6 | 7,5 | 3,2 | 2,5 | 2,3 |
Mars | 452,0 | 0,6 | 6,9 | 4,4 | 3,4 | 2,8 |
Apríl | 452,2 | 0,0 | 0,5 | 4,9 | 2,5 | 2,3 |
Maí | 451,8 | -0,1 | -1,1 | 2,1 | 2,6 | 2,0 |
Júní | 454,6 | 0,6 | 7,7 | 2,3 | 3,3 | 2,6 |
Júlí | 454,8 | 0,0 | 0,5 | 2,3 | 3,6 | 2,7 |
Talnaefni