FRÉTT VERÐLAG 26. MARS 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2013 er 410,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,20% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 392,5 stig og hækkaði um 0,15% frá febrúar.

Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,7% (vísitöluáhrif -0,22%). Vetrarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 2,6% (0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% og vísitalan án húsnæðis um 4,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% sem jafngildir 8,7% verðbólgu á ári (10,0% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2013, sem er 410,7 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.109 stig fyrir maí 2013.

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.