FRÉTT VERÐLAG 27. ÁGÚST 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2014 er 423,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,24% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 397,4 stig og hækkaði um 0,18% frá júlí.

Sumarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,9% (áhrif á vísitöluna 0,33%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,2% (-0,18%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,7% verðbólgu á ári (1,7% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 236,5 237,1 2,2 2,2
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 211,8 212,1 0,3 0,0
Búvörur og grænmeti 198,8 199,1 0,1 0,0
Innlendar vörur án búvöru 221,1 221,5 0,5 0,0
Innfluttar vörur alls 198,5 199,4 -1,2 -0,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  189,4 190,3 -1,6 -0,5
Dagvara 208,5 208,9 -0,4 -0,1

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2014, sem er 423,1 stig, gildir til verðtryggingar í október 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.354 stig fyrir október 2014.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.