FRÉTT VERÐLAG 26. JÚNÍ 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2015 er 429,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,26% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 398,2 stig og hækkaði um 0,35% frá maí.

Verð á ferðum og flutningum hækkaði um 0,9% (áhrif á vísitöluna 0,14%) og verð á þjónustu hótela og veitingastaða hækkaði um 1,9% (0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% og vísitala án húsnæðis hefur hækkað um 0,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2015, sem er 429,3 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.477 stig fyrir ágúst 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Maí Júní %
         
Vísitala neysluverðs 239,9 240,5 1,5 1,5
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 218,7 217,4 2,8 0,4
Búvörur og grænmeti 207,0 204,7 3,1 0,2
Innlendar vörur án búvöru 226,6 226,3 2,4 0,2
Innfluttar vörur alls 194,8 196,1 -2,9 -1,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  185,5 186,8 -3,2 -1,0
Dagvara 213,2 213,2 2,2 0,4
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.