Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2013 er 403,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 384,1 stig og hækkaði um 0,21% frá desember.
Víða eru vetrarútsölur og lækkaði verð á fötum og skóm um 14,1% (vísitöluáhrif -0,77%) og eins lækkaði verð á húsgögnum og heimilisbúnaði um 2,4% (-0,13%).
Verð á tóbaki hækkaði um 17,9% (0,23%), þar af voru 0,12% áhrif vegna hækkunar opinberra gjalda. Verð á opinberri þjónustu hækkaði um 2,6% (0,21%). Þar af hækkuðu gjöld fyrir sorphirðu, fráveitu og vatn um 7,3% (0,13%). Verð á nýjum bílum hækkaði um 2,9% (0,16%), verð á dagvörum um 0,9% (0,16%) og flugfargjöld um 6,6% (0,12%). Verð útgjaldaliðarins íþróttir, fjölmiðlun og happdrætti hækkaði um 3,2% (0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 5,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,6% verðbólgu á ári (2,1% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2013, sem er 403,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.963 stig fyrir mars 2013.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012-2013 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Desember | Janúar | % | ||
Vísitala neysluverðs | 225,3 | 226,0 | 4,2 | 4,2 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur og grænmeti | 204,7 | 206,1 | 5,7 | 0,8 |
Búvörur og grænmeti | 190,9 | 192,2 | 5,6 | 0,3 |
Innlendar vörur án búvöru | 215,0 | 216,6 | 5,9 | 0,4 |
Innfluttar vörur alls | 200,8 | 198,4 | 3,2 | 1,2 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 193,7 | 189,8 | 2,7 | 0,9 |
Dagvara | 203,3 | 205,2 | 5,0 | 0,8 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2012 | ||||||
Janúar | 387,1 | 0,3 | 3,5 | 2,6 | 3,8 | 6,5 |
Febrúar | 391,0 | 1,0 | 12,8 | 6,8 | 5,4 | 6,3 |
Mars | 395,1 | 1,0 | 13,3 | 9,8 | 6,3 | 6,4 |
Apríl | 398,2 | 0,8 | 9,8 | 12,0 | 7,2 | 6,4 |
Maí | 398,1 | 0,0 | -0,3 | 7,5 | 7,1 | 5,4 |
Júní | 400,1 | 0,5 | 6,2 | 5,2 | 7,4 | 5,4 |
Júlí | 397,2 | -0,7 | -8,4 | -1,0 | 5,3 | 4,6 |
Ágúst | 396,6 | -0,2 | -1,8 | -1,5 | 2,9 | 4,1 |
September | 399,6 | 0,8 | 9,5 | -0,5 | 2,3 | 4,3 |
Október | 400,7 | 0,3 | 3,4 | 3,6 | 1,3 | 4,2 |
Nóvember | 402,0 | 0,3 | 4,0 | 5,6 | 2,0 | 4,5 |
Desember | 402,2 | 0,0 | 0,6 | 2,6 | 1,1 | 4,2 |
2013 | ||||||
Janúar | 403,3 | 0,3 | 3,3 | 2,6 | 3,1 | 4,2 |