FRÉTT VERÐLAG 26. FEBRÚAR 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2015 er 422,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,67% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,4 stig og hækkaði um 0,57% frá janúar.

Vetrarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,8% (áhrif á vísitöluna 0,24%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,24% (0,18%) og rekstur ökutækja hækkaði um 1,4% (0,11%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 8,7% (-0,12%) og verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 0,7% (-0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,0% verðbólgu á ári (2,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar  2015, sem er 422,1 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.334 stig fyrir apríl 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
         
Vísitala neysluverðs 234,9 236,5 0,8 0,8
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 217,7 216,9 2,1 0,3
Búvörur og grænmeti 205,3 204,3 1,9 0,1
Innlendar vörur án búvöru 226,3 225,8 2,2 0,1
Innfluttar vörur alls 188,3 190,8 -5,3 -1,8
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  178,7 181,3 -5,8 -1,8
Dagvara 213,3 212,0 0,8 0,1
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.