FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2014 er 418,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,67% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,9 stig og hækkaði um 0,87% frá janúar.

Vetrarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% (vísitöluáhrif 0,33%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 11,0% (0,14%) en verð á dagvörum lækkaði um 0,6% (-0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 1,9% verðbólgu á ári (0,4% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2014, sem er 418,7 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.267 stig fyrir apríl 2014.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
Vísitala neysluverðs 233,0 234,6 2,1 2,1
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 213,9 212,5 2,7 0,4
Búvörur og grænmeti 203,2 200,4 4,4 0,3
Innlendar vörur án búvöru 221,0 221,0 1,1 0,1
Innfluttar vörur alls 198,2 201,5 -2,1 -0,8
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  189,2 192,5 -2,6 -0,8
Dagvara 211,6 210,3 1,6 0,3

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8
Ágúst 413,8 0,3 4,2 2,5 1,9 4,3
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.