FRÉTT VERÐLAG 27. APRÍL 2012

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl er 398,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 378,7 stig og hækkaði um 0,74% frá mars.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 2,6% (vísitöluáhrif 0,14%), verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,0% (0,14%) og verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 1,9% (0,12%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,0% (0,13%). Þar af voru 0,19% áhrif af hækkun markaðsverðs og -0,06% af lækkun raunvaxta.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% og vísitalan án húsnæðis um 6,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,9% sem jafngildir 12,0% verðbólgu á ári (14,7% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2012, sem er 398,2 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.862 stig fyrir júní 2012.

Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2012 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2008-2010. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna tölur um nýskráningar bifreiða og gögn um veltu á smásölumarkaði. Innbyrðis vægi dagvöruverslana hefur verið endurskoðað en áhrif þeirrar breytingar eru að þessu sinni óveruleg. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2012 er að finna hér.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2011–2012
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Mars Apríl %
         
Vísitala neysluverðs 221,4 223,1 6,4 6,4
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 197,0 198,5 7,8 1,0
Búvörur og grænmeti 183,3 184,0 9,0 0,5
Innlendar vörur án búvöru 207,4 209,7 6,9 0,5
Innfluttar vörur alls 199,3 201,9 5,3 2,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  192,2 194,9 5,4 1,9
Dagvara 196,1 198,1 6,8 1,1

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011            
Apríl 374,1 0,8 9,8 12,3 4,9 2,8
Maí 377,6 0,9 11,8 11,2 6,7 3,4
Júní 379,5 0,5 6,2 9,2 7,1 4,2
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0
Ágúst 380,9 0,3 3,2 3,5 7,3 5,0
September 383,3 0,6 7,8 4,1 6,6 5,7
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012            
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.