Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2015 er 426,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,02% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,4 stig og hækkaði um 1,02% frá febrúar.
Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 9,1% (áhrif á vísitöluna 0,39%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,6% (0,24%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 5,8% (0,20%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,8% (0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 3,9% verðbólgu á ári (1,1% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2015, sem er 426,4 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.419 stig fyrir maí 2015.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Febrúar | Mars | % | ||
Vísitala neysluverðs | 236,5 | 238,9 | 1,6 | 1,6 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur og grænmeti | 216,9 | 216,9 | 2,1 | 0,3 |
Búvörur og grænmeti | 204,3 | 204,0 | 2,2 | 0,1 |
Innlendar vörur án búvöru | 225,8 | 226,2 | 2,1 | 0,1 |
Innfluttar vörur alls | 190,8 | 194,6 | -3,6 | -1,2 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 181,3 | 185,3 | -4,0 | -1,2 |
Dagvara | 212,0 | 211,8 | 0,9 | 0,1 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2014 | ||||||
Mars | 419,7 | 0,2 | 2,9 | 0,8 | 2,2 | 2,2 |
Apríl | 421,0 | 0,3 | 3,8 | 5,0 | 2,8 | 2,3 |
Maí | 421,3 | 0,1 | 0,9 | 2,5 | 2,2 | 2,4 |
Júní | 422,8 | 0,4 | 4,4 | 3,0 | 1,9 | 2,2 |
Júlí | 422,1 | -0,2 | -2,0 | 1,0 | 3,0 | 2,4 |
Ágúst | 423,1 | 0,2 | 2,9 | 1,7 | 2,1 | 2,2 |
September | 422,6 | -0,1 | -1,4 | -0,2 | 1,4 | 1,8 |
Október | 423,2 | 0,1 | 1,7 | 1,0 | 1,0 | 1,9 |
Nóvember | 421,0 | -0,5 | -6,1 | -2,0 | -0,1 | 1,0 |
Desember | 422,3 | 0,3 | 3,8 | -0,3 | -0,2 | 0,8 |
2015 | ||||||
Janúar | 419,3 | -0,7 | -8,2 | -3,6 | -1,3 | 0,8 |
Febrúar | 422,1 | 0,7 | 8,3 | 1,0 | -0,5 | 0,8 |
Mars | 426,4 | 1,0 | 12,9 | 3,9 | 1,8 | 1,6 |