FRÉTT VERÐLAG 12. ÁGÚST 2004

Vísitala neysluverðs í ágúst 2004 er 234,6 stig (maí 1988=100) og er óbreytt frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,3 stig, 0,18% lægri en í júlí.
       Eigið húsnæði í vísitölunni hækkaði um 0,9% (vísitöluáhrif 0,13%) og verð á bensíni og olíu um 3,3% (0,14%).
Sumarútsölur halda enn áfram og leiddu til 6,0% lækkunar á fötum og skóm (-0,32%).
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,2% verðbólgu á ári (án húsnæðis lækkað um 0,2%).
       Vísitala neysluverðs í ágúst 2004, sem er 234,6 stig, gildirtil verðtryggingar í september 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.632 stig fyrir september 2004.

Í ágúst var útreikningi á meðalraunvöxtum sem notaðir eru við útreikning á húsnæðislið vísitölunnar breytt og miðast nú við meðaltal fimm ára. Nánari grein er gerð fyrir breytingunni á minnisblaði sem fylgir fréttatilkynningunni.

Breyting útreiknings á húsnæðislið vísitölu neysluverðs í ágúst 2004

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.