FRÉTT VERÐLAG 11. ÁGÚST 2005

Vísitala neysluverðs í ágúst 2005 er 243,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,21% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,5 stig, lækkaði um 0,18% frá því í júlí.

Sumarútsölur halda enn áfram og leiddu til 6,6% verðlækkunar á fötum og skóm (vísitöluáhrif -0,33%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 2,0% (0,32%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,37% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,05%. Verð á dagvöru hækkaði um 0,84% (0,13%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 1,9% (0,09%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 4,2% verðbólgu á ári (0,2% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í ágúst 2005, sem er 243,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.802 stig fyrir september 2005.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2004
Ágúst 234,6 0,0 0,0 1,2 4,6 3,7
September 235,6 0,4 5,2 -0,2 4,3 3,4
Október 237,4 0,8 9,6 4,9 4,7 3,7
Nóvember 237,9 0,2 2,6 5,7 3,4 3,8
Desember 239,0 0,5 5,7 5,9 2,8 3,9
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Júlí 2005 Ágúst 2005 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 136,0 136,2 3,6% 3,6%
Þar af:    
Innlendar vörur 122,3 123,3 -2,1% -0,3%
Búvörur og grænmeti 118,6 117,8 -2,6% -0,2%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 124,6 127,0 -1,7% -0,2%
Innfluttar vörur alls 112,1 110,9 -1,9% -0,6%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  108,2 106,8 -2,6% -0,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 137,3 137,5 4,1% 3,6%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 137,1 137,4 3,9% 3,1%
Dagvara 114,8 115,7 -5,1% -0,9%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.