Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2008 er 312,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 280,8 stig og hækkaði hún einnig um 0,90% frá júlí.
Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,9% (vísitöluáhrif -0,20%) en verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,8% (0,23%). Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,7% (0,19%).
Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% (-0,06%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,11% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,05%. Þá hækkaði verð á efni til viðhalds húsnæðis um 6,3% (0,25%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 14,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 14,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% sem jafngildir 11,5% verðbólgu á ári (10,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2008, sem er 312,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.176 stig fyrir október 2008.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2007 | ||||||
Ágúst | 273,1 | 0,0 | 0,4 | 3,1 | 3,8 | 3,4 |
September | 276,7 | 1,3 | 17,0 | 6,5 | 7,3 | 4,2 |
Október | 278,1 | 0,5 | 6,2 | 7,7 | 7,1 | 4,5 |
Nóvember | 279,9 | 0,6 | 8,0 | 10,3 | 6,7 | 5,2 |
Desember | 281,8 | 0,7 | 8,5 | 7,6 | 7,0 | 5,9 |
2008 | ||||||
Janúar | 282,3 | 0,2 | 2,2 | 6,2 | 6,9 | 5,8 |
Febrúar | 286,2 | 1,4 | 17,9 | 9,3 | 9,8 | 6,8 |
Mars | 290,4 | 1,5 | 19,1 | 12,8 | 10,1 | 8,7 |
Apríl | 300,3 | 3,4 | 49,5 | 28,0 | 16,6 | 11,8 |
Maí | 304,4 | 1,4 | 17,7 | 28,0 | 18,3 | 12,3 |
Júní | 307,1 | 0,9 | 11,2 | 25,1 | 18,8 | 12,7 |
Júlí | 310,0 | 0,9 | 11,9 | 13,6 | 20,6 | 13,6 |
Ágúst | 312,8 | 0,9 | 11,4 | 11,5 | 19,5 | 14,5 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Júlí | Ágúst | % | ||
Vísitala neysluverðs | 173,7 | 175,2 | 14,5 | 14,5 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 149,8 | 151,9 | 15,8 | 2,0 |
Búvörur og grænmeti | 147,3 | 149,5 | 16,8 | 0,9 |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 151,0 | 153,1 | 15,0 | 1,1 |
Innfluttar vörur alls | 141,3 | 142,1 | 19,8 | 6,7 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 137,6 | 138,4 | 21,0 | 6,5 |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 173,2 | 175,1 | 12,9 | 11,6 |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 175,1 | 177,1 | 13,6 | 11,3 |
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) | 172,6 | 174,6 | 12,0 | 9,9 |
Dagvara | 147,7 | 150,4 | 20,5 | 3,0 |
Talnaefni