FRÉTT VERÐLAG 27. ÁGÚST 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2008 er 312,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 280,8 stig og hækkaði hún einnig um 0,90% frá júlí.

Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,9% (vísitöluáhrif -0,20%) en verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,8% (0,23%). Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,7% (0,19%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% (-0,06%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,11% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,05%. Þá hækkaði verð á efni til viðhalds húsnæðis um 6,3% (0,25%).

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 14,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 14,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% sem jafngildir 11,5% verðbólgu á ári (10,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2008, sem er 312,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.176 stig fyrir október 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 173,7 175,2 14,5 14,5
Þar af:    
Innlendar vörur 149,8 151,9 15,8 2,0
Búvörur og grænmeti 147,3 149,5 16,8 0,9
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 151,0 153,1 15,0 1,1
Innfluttar vörur alls 141,3 142,1 19,8 6,7
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  137,6 138,4 21,0 6,5
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,     
ávaxta og bensíns) 173,2 175,1 12,9 11,6
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 175,1 177,1 13,6 11,3
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 172,6 174,6 12,0 9,9
Dagvara 147,7 150,4 20,5 3,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.