FRÉTT VERÐLAG 25. ÁGÚST 2011

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst er 380,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 361,2 stig og hækkaði um 0,36% frá júlí.

Sumarútsölur eru víða um garð gengnar og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,5% (vísitöluáhrif 0,29%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,8% (0,12%) og verð á bensíni og olíum lækkaði um 1,7% (-0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,5% verðbólgu á ári (2,7% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2011, sem er 380,9 stig, gildir til verðtryggingar í október 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.521 stig fyrir október 2011.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 212,8 213,4 5,0 5,0
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 189,7 191,5 6,8 0,9
Búvörur og grænmeti 175,0 178,4 9,7 0,6
Innlendar vörur án búvöru 201,0 201,4 4,5 0,3
Innfluttar vörur alls 190,8 191,3 4,0 1,5
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  184,0 184,5 4,0 1,4
Dagvara 190,1 191,3 4,4 0,8

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8
Febrúar 367,7 1,2 15,2 2,4 2,8 1,9
Mars 371,2 1,0 12,0 5,0 4,8 2,3
Apríl 374,1 0,8 9,8 12,3 4,9 2,8
Maí 377,6 0,9 11,8 11,2 6,7 3,4
Júní 379,5 0,5 6,2 9,2 7,1 4,2
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0
Ágúst 380,9 0,3 3,2 3,5 7,3 5,0

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.