Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2019, er 470,1 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,28% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 401,6 stig og hækkar um 0,40% frá júlí 2019.

Sumarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fatnaði og skóm um 8,7% (áhrif á vísitöluna 0,34%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,0% ( -0,16%). Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 6,7% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,2% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 3,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2019, sem er 470,1 stig, gildir til verðtryggingar í október 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.282 stig fyrir október 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2

Talnaefni