Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2021, er 505,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,46% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 429,0 stig og hækkar um 0,40% frá júlí 2021.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,0% (0,16%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,3%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2021, sem er 505,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.987 stig fyrir október 2021.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021 | |||
Maí 1988 = 100 | Vísitala | Mánaðarbreyting, % | Ársbreyting, % |
2020 | |||
Ágúst | 485,1 | 0,46 | 3,2 |
September | 487,0 | 0,39 | 3,5 |
Október | 489,1 | 0,43 | 3,6 |
Nóvember | 489,3 | 0,04 | 3,5 |
Desember | 490,3 | 0,20 | 3,6 |
2021 | |||
Janúar | 490,0 | -0,06 | 4,3 |
Febrúar | 493,4 | 0,69 | 4,1 |
Mars | 495,8 | 0,49 | 4,3 |
Apríl | 499,3 | 0,71 | 4,6 |
Maí | 501,4 | 0,42 | 4,4 |
Júní | 502,7 | 0,26 | 4,3 |
Júlí | 503,5 | 0,16 | 4,3 |
Ágúst | 505,8 | 0,46 | 4,3 |