Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2026, er 694,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,20% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 553,8 stig og lækkar um 0,02% frá júlí 2026.
Fataútsölur eru víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum um 4,1% (áhrif á vísitöluna 0,10%). Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9% (0,18%) og flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 9,6% (-0,34%).
Gjöld í háskóla hækkuðu um 15,1% (áhrif á vísitöluna 0,07%) en sú hækkun er að mestu leyti tilkomin vegna hækkunar skráningargjalds í opinberum háskólum úr 75.000 kr í 100.000 kr. Það gjald hækkaði síðast fyrir 12 árum.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2026, sem er 694,6 stig, gildir til verðtryggingar í október 2026.