Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2008 er 300,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 3,4% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 269,6 stig og hækkaði um 4,2% frá mars.
Gengissig íslensku krónunnar undanfarið hefur skilað sér mjög hratt út í verðlagið og hækkaði verð á innfluttum vörum um 6,2% (vísitöluáhrif 2,1%). Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 7,1% (1,14%). Þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 11,0% (0,77%) og á bensíni og olíum um 5,2% (0,24%).
Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 6,4% (0,77%), þar af hækkaði verð á mjólk og mjólkurvörum um 10,2% (0,20%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% sem jafngildir 28% verðbólgu á ári (33,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Mánaðarbreyting vísitölu neysluverðs hefur ekki verið meiri frá júlí 1988 en þá hækkaði hún um 3,5% og fyrir vísitöluna án húsnæðis frá janúar 1985 en þá hækkaði hún um 4,8%. Miðað við tólf mánaða breytingu vísitölunnar hefur verðbólgan ekki mælst meiri síðan í september 1990.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2008, sem er 300,3 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.929 stig fyrir júní 2008.
Grunnur vísitölu neysluverðs er endurnýjaður í apríl á hverju ári og byggist hann nú á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2004-2006. Árleg grunnskipti leiða til þess að ekki verða verulegar breytingar á skiptingu útgjalda frá einu ári til annars. þá skal tekið fram að endurnýjun vísitölugrunnsins veldur sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl.
Hinn 16. maí næstkomandi verður gefið út hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs þar sem nánar verður fjallað um breytingar hennar undangengið ár.
| Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008 | ||||||
| Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
| Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
| Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
| Vísitala | ||||||
| 2007 | ||||||
| Apríl | 268,7 | 0,6 | 7,4 | 2,7 | 1,9 | 5,3 |
| Maí | 271,0 | 0,9 | 10,8 | 4,6 | 3,7 | 4,7 |
| Júní | 272,4 | 0,5 | 6,4 | 8,2 | 4,7 | 4,0 |
| Júlí | 273,0 | 0,2 | 2,7 | 6,6 | 4,6 | 3,8 |
| Ágúst | 273,1 | 0,0 | 0,4 | 3,1 | 3,8 | 3,4 |
| September | 276,7 | 1,3 | 17,0 | 6,5 | 7,3 | 4,2 |
| Október | 278,1 | 0,5 | 6,2 | 7,7 | 7,1 | 4,5 |
| Nóvember | 279,9 | 0,6 | 8,0 | 10,3 | 6,7 | 5,2 |
| Desember | 281,8 | 0,7 | 8,5 | 7,6 | 7,0 | 5,9 |
| 2008 | ||||||
| Janúar | 282,3 | 0,2 | 2,2 | 6,2 | 6,9 | 5,8 |
| Febrúar | 286,2 | 1,4 | 17,9 | 9,3 | 9,8 | 6,8 |
| Mars | 290,4 | 1,5 | 19,1 | 12,8 | 10,1 | 8,7 |
| Apríl | 300,3 | 3,4 | 49,5 | 28,0 | 16,6 | 11,8 |
| Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008 | ||||
| Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
| Áhrif á vísit. | ||||
| Mars | Apríl | % | ||
| Vísitala neysluverðs | 162,7 | 168,2 | 11,7 | 11,7 |
| Þar af: | ||||
| Innlendar vörur | 137,5 | 144,0 | 11,6 | 1,5 |
| Búvörur og grænmeti | 132,8 | 142,8 | 13,9 | 0,8 |
| Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 140,5 | 144,2 | 9,8 | 0,7 |
| Innfluttar vörur alls | 128,2 | 136,2 | 13,4 | 4,6 |
| Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 124,3 | 132,5 | 14,2 | 4,5 |
| Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
| ávaxta og bensíns) | 164,0 | 168,9 | 10,4 | 9,3 |
| Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 165,1 | 170,4 | 10,8 | 9,0 |
| Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) | 161,1 | 168,6 | 9,5 | 7,9 |
| Dagvara | 132,2 | 140,4 | 13,7 | 2,0 |
Talnaefni