FRÉTT VERÐLAG 28. APRÍL 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2008 er 300,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 3,4% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 269,6 stig og hækkaði um 4,2% frá mars.

Gengissig íslensku krónunnar undanfarið hefur skilað sér mjög hratt út í verðlagið og hækkaði verð á innfluttum vörum um 6,2% (vísitöluáhrif 2,1%). Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 7,1% (1,14%). Þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 11,0% (0,77%) og á bensíni og olíum um 5,2% (0,24%).

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 6,4% (0,77%), þar af hækkaði verð á mjólk og mjólkurvörum um 10,2% (0,20%).

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% sem jafngildir 28% verðbólgu á ári (33,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Mánaðarbreyting vísitölu neysluverðs hefur ekki verið meiri frá júlí 1988 en þá hækkaði hún um 3,5% og fyrir vísitöluna án húsnæðis frá janúar 1985 en þá hækkaði hún um 4,8%. Miðað við tólf mánaða breytingu vísitölunnar hefur verðbólgan ekki mælst meiri síðan í september 1990.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2008, sem er 300,3 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.929 stig fyrir júní 2008.

Grunnur vísitölu neysluverðs er endurnýjaður í apríl á hverju ári og byggist hann nú á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2004-2006. Árleg grunnskipti leiða til þess að ekki verða verulegar breytingar á skiptingu útgjalda frá einu ári til annars. þá skal tekið fram að endurnýjun vísitölugrunnsins veldur sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl.

Hinn 16. maí næstkomandi verður gefið út hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs þar sem nánar verður fjallað um breytingar hennar undangengið ár.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Mars Apríl %
Vísitala neysluverðs 162,7 168,2 11,7 11,7
Þar af:    
Innlendar vörur 137,5 144,0 11,6 1,5
Búvörur og grænmeti 132,8 142,8 13,9 0,8
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 140,5 144,2 9,8 0,7
Innfluttar vörur alls 128,2 136,2 13,4 4,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  124,3 132,5 14,2 4,5
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 164,0 168,9 10,4 9,3
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 165,1 170,4 10,8 9,0
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 161,1 168,6 9,5 7,9
Dagvara 132,2 140,4 13,7 2,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.