Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2009 er 336,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 311,6 stig og hækkaði hún um 0,84% frá mars.
Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 8,2% (vísitöluáhrif 0,33%) og verð á fötum og skóm um 3,2% (0,19%).
Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 1,6% (-0,23%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,19% og -0,04% af lækkun raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,10%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (9,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2009, sem er 336,0 stig gildir til verðtryggingar í júní 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.634 stig fyrir júní 2009.
Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2009 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2005-2007. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna nýskráningar á bifreiðum, umsvif flug- og pakkaferða auk gagna um veltu smásöluverslana. Búðarvogum í dagvöruverslun hefur verið breytt. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2008 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,12% til lækkunar á vísitölunni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2009 er að finna hér.
Hinn 12. maí næstkomandi verður gefið út hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs þar sem nánar verður fjallað um breytingar hennar undangengið ár og grunnskiptin nú.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2008 | ||||||
Apríl | 300,3 | 3,4 | 49,5 | 28,0 | 16,6 | 11,8 |
Maí | 304,4 | 1,4 | 17,7 | 28,0 | 18,3 | 12,3 |
Júní | 307,1 | 0,9 | 11,2 | 25,1 | 18,8 | 12,7 |
Júlí | 310,0 | 0,9 | 11,9 | 13,6 | 20,6 | 13,6 |
Ágúst | 312,8 | 0,9 | 11,4 | 11,5 | 19,5 | 14,5 |
September | 315,5 | 0,9 | 10,9 | 11,4 | 18,0 | 14,0 |
Október | 322,3 | 2,2 | 29,2 | 16,8 | 15,2 | 15,9 |
Nóvember | 327,9 | 1,7 | 23,0 | 20,8 | 16,0 | 17,1 |
Desember | 332,9 | 1,5 | 19,9 | 24,0 | 17,5 | 18,1 |
2009 | ||||||
Janúar | 334,8 | 0,6 | 7,1 | 16,4 | 16,6 | 18,6 |
Febrúar | 336,5 | 0,5 | 6,3 | 10,9 | 15,7 | 17,6 |
Mars | 334,5 | -0,6 | -6,9 | 1,9 | 12,4 | 15,2 |
Apríl | 336,0 | 0,4 | 5,5 | 1,4 | 8,7 | 11,9 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Mars | Apríl | % | ||
Vísitala neysluverðs | 187,4 | 188,2 | 11,9 | 11,9 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 166,5 | 166,1 | 15,4 | 2,0 |
Búvörur og grænmeti | 161,7 | 160,6 | 12,4 | 0,7 |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 169,5 | 169,6 | 17,7 | 1,2 |
Innfluttar vörur alls | 160,7 | 163,8 | 20,3 | 7,1 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 155,7 | 158,9 | 19,9 | 6,4 |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 189,1 | 189,7 | 12,3 | 10,9 |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 191,9 | 192,5 | 13,0 | 10,5 |
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) | 189,8 | 190,6 | 13,0 | 10,4 |
Dagvara | 171,9 | 170,4 | 21,4 | 3,4 |
Talnaefni