FRÉTT VERÐLAG 29. APRÍL 2010

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl er 363,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,25% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,9 stig og hækkaði hún um 0,26% frá mars.

Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,1% (vísitöluáhrif 0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% sem jafngildir 8,1% verðbólgu á ári (11,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2010, sem er 363,8 stig gildir til verðtryggingar í júní 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.183 stig fyrir júní 2010.

Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2010 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2006-2008. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna tölur um nýskráningar bifreiða og gögn um veltu á smásölumarkaði. Innbyrðis vægi dagvöruverslana hefur verið endurskoðað. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2009 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,03% til lækkunar á vísitölunni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Breytt hefur verið um aðferð við útreikning vísitölu fyrir kaup á nýjum bílum og eru undirvísitölur nú reiknaðar sem afburðavísitölur. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2010 er að finna hér.

Hinn 12. maí næstkomandi verður gefið út hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs þar sem nánar verður fjallað um breytingar hennar undangengið ár og grunnskiptin nú. Einnig verður gerð nánari grein fyrir áðurnefndri breytingu á útreikningi bílavísitölunnar.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Mars Apríl %
         
Vísitala neysluverðs 203,3 203,8 8,3 8,3
Þar af:        
Innlendar vörur 179,6 181,5 9,3 1,3
Búvörur og grænmeti 164,5 168,1 4,7 0,3
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 191,4 191,8 13,1 1,0
Innfluttar vörur alls 188,2 188,0 14,8 5,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  181,8 181,6 14,3 4,7
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,         
ávaxta og bensíns) 203,1 203,2 7,2 6,3
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 206,4 206,5 7,2 5,8
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 205,6 205,8 8,0 6,4
Dagvara 184,3 186,1 9,3 1,7
Breytingar vísitölu neysluverðs 2009–2010
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2009            
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6
Júní 344,5 1,4 17,9 12,5 7,1 12,2
Júlí 345,1 0,2 2,1 11,3 6,2 11,3
Ágúst 346,9 0,5 6,4 8,6 6,3 10,9
September 349,6 0,8 9,8 6,1 9,2 10,8
Október 353,6 1,1 14,6 10,2 10,8 9,7
Nóvember 356,2 0,7 9,2 11,2 9,9 8,6
Desember 357,9 0,5 5,9 9,8 7,9 7,5
2010            
Janúar 356,8 -0,3 -3,6 3,7 6,9 6,6
Febrúar 360,9 1,1 14,7 5,4 8,2 7,3
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.