Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl er 374,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 356,2 stig og hækkaði um 0,65% frá mars.
Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,2% (vísitöluáhrif 0,19%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16% (0,16%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,4% (0,17%), aðallega vegna hærra markaðsverðs.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% og vísitalan án húsnæðis um 2,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,9% sem jafngildir 12,3% verðbólgu á ári (12,2% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2011, sem er 374,1 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.387 stig fyrir júní 2011.
Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2011 og byggist hann á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2007-2009. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna tölur um nýskráningar bifreiða og gögn um veltu á smásölumarkaði. Innbyrðis vægi dagvöruverslana hefur verið endurskoðað. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2010 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,04% til lækkunar á vísitölunni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2011 er að finna hér.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010-2011 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Mars | Apríl | % | ||
Vísitala neysluverðs | 208,0 | 209,6 | 2,8 | 2,8 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur og grænmeti | 183,9 | 184,2 | 1,5 | 0,2 |
Búvörur og grænmeti | 169,4 | 168,9 | 0,4 | 0,0 |
Innlendar vörur án búvöru | 195,2 | 196,2 | 2,3 | 0,2 |
Innfluttar vörur alls | 190,1 | 191,7 | 2,0 | 0,8 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 183,3 | 185,0 | 1,9 | 0,7 |
Dagvara | 186,3 | 185,5 | -0,3 | -0,1 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2010 | ||||||
Apríl | 363,8 | 0,2 | 3,0 | 8,1 | 5,9 | 8,3 |
Maí | 365,3 | 0,4 | 5,1 | 5,0 | 5,2 | 7,5 |
Júní | 364,1 | -0,3 | -3,9 | 1,3 | 3,5 | 5,7 |
Júlí | 361,7 | -0,7 | -7,6 | -2,3 | 2,8 | 4,8 |
Ágúst | 362,6 | 0,2 | 3,0 | -2,9 | 0,9 | 4,5 |
September | 362,6 | 0,0 | 0,0 | -1,6 | -0,2 | 3,7 |
Október | 365,3 | 0,7 | 9,3 | 4,0 | 0,8 | 3,3 |
Nóvember | 365,5 | 0,1 | 0,7 | 3,2 | 0,1 | 2,6 |
Desember | 366,7 | 0,3 | 4,0 | 4,6 | 1,4 | 2,5 |
2011 | ||||||
Janúar | 363,4 | -0,9 | -10,3 | -2,1 | 0,9 | 1,8 |
Febrúar | 367,7 | 1,2 | 15,2 | 2,4 | 2,8 | 1,9 |
Mars | 371,2 | 1,0 | 12,0 | 5,0 | 4,8 | 2,3 |
Apríl | 374,1 | 0,8 | 9,8 | 12,3 | 4,9 | 2,8 |
Talnaefni