FRÉTT VERÐLAG 27. APRÍL 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2018 er 452,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,04% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 388,4 stig og hækkar um 0,08% frá mars 2018.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) lækkar um 0,2% (áhrif á vísitölu -0,04%) og bensín og olíur hækkuðu um 1,6% (0,05%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,3% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2018, sem er 452,2 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.929 stig fyrir júní 2018.

Vísitala neysluverðs í apríl er reiknuð á nýjum grunni, mars 2018, og byggist hann á niðurstöðum úr rannsókn Hagstofu Íslands á útgjöldum heimilanna 2013–2016 auk annarra heimilda. Til viðbótar útgjaldarannsókn hefur Hagstofan notast við ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins, svo sem um nýskráningar bifreiða. Við grunnskipti er einnig innbyrðis vægi dagvöruverslana endurskoðað en áhrif af því voru hverfandi að þessu sinni. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2018 má finna í meðfylgjandi minnisblaði.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2017            
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9
2018            
Janúar 446,8 -0,1 -1,1 0,1 1,8 2,4
Febrúar 449,5 0,6 7,5 3,2 2,5 2,3
Mars 452,0 0,6 6,9 4,4 3,4 2,8
Apríl 452,2 0,0 0,5 4,9 2,5 2,3 


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.