FRÉTT VERÐLAG 27. APRÍL 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2023, er 588,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 1,31% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 487,1 stig og hækkar um 1,08% frá mars 2023.

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,5% (áhrif á vísitöluna 0,23%). Hluti af þeirri hækkun skýrist af hækkun á mjólk, ostum og eggjum um 3,9% (0,10%). Reiknuð húsaleiga hækkaði um 2,5% (0,46%), verð á húsgögnum og heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 1,9% (0,12%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 19,5% (0,35%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,9% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 8,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2023, sem er 588,3 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.616 stig fyrir júní 2023.

Uppfærðar grunnvogir
Vísitala neysluverðs í apríl er reiknuð á nýjum grunni, mars 2023, og byggist hann á niðurstöðum úr rannsókn Hagstofu Íslands á útgjöldum heimilanna 2019-2021. Neysluhlutföll eru skoðuð yfir þriggja ára tímabil til þess að draga fram langtímaþróun á sama tíma og dregið er úr skammtímasveiflum í niðurstöðum. Jafnframt er litið til annarra heimilda, svo sem þjóðhagsreikninga, til að styrkja niðurstöður.

Endurnýjun grunnsins veldur sem slík ekki breytingum á vísitölunni á milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2023 má finna í meðfylgjandi minnisblaði.




Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.