FRÉTT VERÐLAG 24. APRÍL 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2024, er 623,7 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,55% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 505,9 stig og hækkar um 0,30% frá mars 2024.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,7% (áhrif á vísitöluna 0,32%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 11,3% (0,20%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,9%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2024, sem er 623,7 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2024.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.