Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2026, er 683,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,81% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 547,0 stig og hækkar um 0,85% frá mars 2026.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,16%), verð á bensíni hækkaði um 12,1% (0,21%), verð á dísel hækkaði um 19,7% (0,16%) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 6,1% (0,14%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2026, sem er 683,8 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2026.
Ný tafla fyrir undirvísitölur með tengingu við eldra flokkunarkerfi
Til að auðvelda notendum að vinna með lengri tímaraðir er búið að bæta við aukatöflu fyrir undirvísitölur: Undirvísitölur tengdar við eldra flokkunarkerfi en í töflunni er búið að tengja vísitölugildi fyrir flokka í COICOP2018 við vísitölugildi úr samsvarandi flokkum í eldra flokkunarkerfi, ISLCOICOP. Eingöngu eru tengdir saman flokkar sem hafa sama (eða mjög líkt) innihald í báðum kerfum. Nánari upplýsingar um tengingarnar má finna í skýringum við töfluna.