FRÉTT VERÐLAG 10. DESEMBER 2004

Vísitala neysluverðs í desember 2004 er 239,0 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,46% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 230,5 stig, hækkaði um 0,30% frá því í nóvember.
     Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 1,6% (vísitöluáhrif 0,20%) og verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,9% (0,13%).
     Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,9% verðbólgu á ári (4,1% án húsnæðis). 
     Vísitala neysluverðs í desember 2004, sem er 239,0 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4719 stig fyrir janúar 2005. 


 
Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.