FRÉTT VERÐLAG 12. DESEMBER 2005

Vísitala neysluverðs í desember 2005 er 248,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,36% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 232,0 stig, hækkaði um 0,22% frá því í nóvember.

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 0,9% (vísitöluáhrif 0,15%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,13% og áhrif af hækkun meðalvaxta 0,02%. Verð á fötum og skóm hækkaði um 2,1% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,3% verðbólgu á ári (1,0% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í desember 2005, sem er 248,9 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.915 stig fyrir janúar 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2004
Ágúst 234,6 0,0 0,0 1,2 4,6 3,7
September 235,6 0,4 5,2 -0,2 4,3 3,4
Október 237,4 0,8 9,6 4,9 4,7 3,7
Nóvember 237,9 0,2 2,6 5,7 3,4 3,8
Desember 239,0 0,5 5,7 5,9 2,8 3,9
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005

Undirvísitölur mars 1997=100

Breyting síðustu 12 mánuði
Nóv. 2005 Des. 2005 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 138,9 139,4 4,1% 4,1%
Þar af:    
Innlendar vörur 126,1 126,4 -1,0% -0,2%
Búvörur og grænmeti 121,4 122,0 -0,3% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 129,2 129,2 -1,5% -0,1%
Innfluttar vörur alls 113,5 113,3 -2,2% -0,7%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  109,5 109,4 -2,6% -0,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 140,4 141,1 4,6% 4,0%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 140,5 141,1 4,4% 3,5%
Dagvara 119,2 119,7 -3,0% -0,5%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.