Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2008 er 332,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 303,4 stig og hækkaði hún um 1,71% frá nóvember.
Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 4,4% (vísitöluáhrif 0,31%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 7,2% (0,31%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 2,1% (0,27%) og verð á áfengi hækkaði um 9,2% (0,15%), að hluta til vegna hækkunar áfengisgjalds. Verð á tómstundavörum, leikföngum og ritföngum hækkaði um 2,4% (0,28%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 14,6% (0,17%).
Verð á bensíni og olíum lækkaði um 8,6% (-0,39%) þrátt fyrir hækkun olíugjalds. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði lækkaði um 0,5% (-0,07%). Þar af námu áhrif af lækkun markaðsverðs á húsnæði -0,04% og lækkun raunvaxta -0,03%, en vextir hafa ekki haft áhrif til lækkunar vísitölunnar frá nóvember 2005.
Fastskattavísitala neysluverðs var ekki uppfærð nú vegna þess að ekki gafst nægur tími til að meta áhrif af breytingum á áfengis-, tóbaks- og olíugjaldi auk vörugjalda sem samþykktar voru með lögum þann 11. desember. Vísitalan verður næst birt um leið og vísitala neysluverðs í janúar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 20,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,5% sem jafngildir 24,0% verðbólgu á ári (29,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Meðalvísitala neysluverðs árið 2008 var 307,7 stig, 12,4% hærri en meðal-vísitalan 2007. Samsvarandi breyting var 5,0% árið 2007 og 6,8% árið 2006.
Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis var 276,8 stig árið 2008, 12.2% hærri en árið 2007. Samsvarandi breyting var 2,5% árið 2007 og 4,8% árið 2006.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2008, sem er 332,9 stig gildir til verðtryggingar í febrúar 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.573 stig fyrir febrúar 2009.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Nóvember | Desember | % | ||
Vísitala neysluverðs | 183,7 | 186,5 | 18,1 | 18,1 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 161,8 | 165,5 | 23,2 | 3,0 |
Búvörur og grænmeti | 158,5 | 161,1 | 23,0 | 1,3 |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 163,6 | 168,2 | 23,4 | 1,7 |
Innfluttar vörur alls | 154,2 | 157,1 | 27,4 | 9,3 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 150,2 | 152,6 | 27,9 | 8,7 |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 184,3 | 188,0 | 17,8 | 15,9 |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 186,8 | 190,9 | 18,7 | 15,4 |
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) | 184,2 | 188,3 | 17,6 | 14,5 |
Dagvara | 164,9 | 168,8 | 32,0 | 4,6 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2007 | ||||||
Desember | 281,8 | 0,7 | 8,5 | 7,6 | 7,0 | 5,9 |
2008 | ||||||
Janúar | 282,3 | 0,2 | 2,2 | 6,2 | 6,9 | 5,8 |
Febrúar | 286,2 | 1,4 | 17,9 | 9,3 | 9,8 | 6,8 |
Mars | 290,4 | 1,5 | 19,1 | 12,8 | 10,1 | 8,7 |
Apríl | 300,3 | 3,4 | 49,5 | 28,0 | 16,6 | 11,8 |
Maí | 304,4 | 1,4 | 17,7 | 28,0 | 18,3 | 12,3 |
Júní | 307,1 | 0,9 | 11,2 | 25,1 | 18,8 | 12,7 |
Júlí | 310,0 | 0,9 | 11,9 | 13,6 | 20,6 | 13,6 |
Ágúst | 312,8 | 0,9 | 11,4 | 11,5 | 19,5 | 14,5 |
September | 315,5 | 0,9 | 10,9 | 11,4 | 18,0 | 14,0 |
Október | 322,3 | 2,2 | 29,2 | 16,8 | 15,2 | 15,9 |
Nóvember | 327,9 | 1,7 | 23,0 | 20,8 | 16,0 | 17,1 |
Desember | 332,9 | 1,5 | 19,9 | 24,0 | 17,5 | 18,1 |
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.