FRÉTT VERÐLAG 22. DESEMBER 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2008 er 332,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 303,4 stig og hækkaði hún um 1,71% frá nóvember.

Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 4,4% (vísitöluáhrif 0,31%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 7,2% (0,31%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 2,1% (0,27%) og verð á áfengi hækkaði um 9,2% (0,15%), að hluta til vegna hækkunar áfengisgjalds. Verð á tómstundavörum, leikföngum og ritföngum hækkaði um 2,4% (0,28%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 14,6% (0,17%).

Verð á bensíni og olíum lækkaði um 8,6% (-0,39%) þrátt fyrir hækkun olíugjalds. Kostnaður vegna  búsetu í eigin húsnæði lækkaði um 0,5% (-0,07%). Þar af námu áhrif af lækkun markaðsverðs á húsnæði -0,04% og lækkun raunvaxta -0,03%, en vextir hafa ekki haft áhrif til lækkunar vísitölunnar frá nóvember 2005.

Fastskattavísitala neysluverðs var ekki  uppfærð nú vegna þess að  ekki gafst nægur tími til að meta áhrif af breytingum á áfengis-, tóbaks- og olíugjaldi auk vörugjalda sem samþykktar voru með lögum þann 11. desember. Vísitalan verður næst birt um leið og vísitala neysluverðs í janúar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 20,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,5% sem jafngildir 24,0% verðbólgu á ári (29,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2008 var 307,7 stig, 12,4% hærri en meðal-vísitalan 2007. Samsvarandi breyting var 5,0% árið 2007 og 6,8% árið 2006. 

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis var 276,8 stig árið 2008, 12.2% hærri en árið 2007. Samsvarandi breyting var 2,5% árið 2007 og 4,8% árið 2006.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2008, sem er 332,9 stig gildir til verðtryggingar í febrúar 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.573 stig fyrir febrúar 2009.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 183,7 186,5 18,1 18,1
Þar af:    
Innlendar vörur 161,8 165,5 23,2 3,0
Búvörur og grænmeti 158,5 161,1 23,0 1,3
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 163,6 168,2 23,4 1,7
Innfluttar vörur alls 154,2 157,1 27,4 9,3
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  150,2 152,6 27,9 8,7
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 184,3 188,0 17,8 15,9
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 186,8 190,9 18,7 15,4
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 184,2 188,3 17,6 14,5
Dagvara 164,9 168,8 32,0 4,6

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.