FRÉTT VERÐLAG 21. DESEMBER 2017

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2017 er 447,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 386,6 stig og hækkar um 0,62% frá nóvember 2017.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) lækkar um 1,1% (áhrif á vísitöluna -0,22%). Flugfargjöld til útlanda hækka um 24,5% (0,22%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 1,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2017, sem er 447,2 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.830 stig fyrir febrúar 2018.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2016-2017
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2016            
Nóvember 438,4 0,0 -0,3 1,8 1,3 2,1
Desember 439,0 0,1 1,7 0,5 1,2 1,9
2017            
Janúar 436,5 -0,6 -6,6 -1,8 0,7 1,9
Febrúar 439,6 0,7 8,9 1,1 1,5 1,9
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.