FRÉTT VERÐLAG 21. DESEMBER 2021

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2021, er 515,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,45% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 434,1 stig og hækkar um 0,37% frá nóvember 2021.

Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 10,8% (áhrif á vísitöluna 0,14%). Verð á mat- og drykkjavörum hækkaði um 0,7% (0,11% en þar af voru mjólkurvörur 0,09%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,6% (0,10%).

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs árið 2021 var 503,3 stig, 4,4% hærri en meðalvísitala ársins 2020. Samsvarandi breyting var 2,8% árið 2020 og 3,0% 2019.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs án húsnæðis árið 2021 var 427,6 stig, 3,8% hærri en meðalvísitala ársins 2020. Samsvarandi breyting var 3,0% árið 2020 og 2,6% 2019.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,3%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2021, sem er 515,3 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.175 stig fyrir febrúar 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.